Hafa samband

KGB Tours
Mosbarði 14, 220 Hafnarfjörður
Sími: +354 554-1827
og +354 899-1295
Netfang: kgb@kgbtours.is

Banner
Ástralía PDF Print E-mail
Written by Administrator   
Tuesday, 23 March 2010 16:33

Dagur 1 og 2
Flug Keflavík-London -Singapore -Brisbane
Dagur 3
Frjáls dagur í Brisbane. Gisting á hóteli rétt við miðbæinn svo stutt er í búðir, veitingastaði, spilavíti o.fl.
Dagur 4
Ferð í Lamington þjóðgarðinn, sem er einstaklega fallegur staður og er á heimsminjaskrá UNESCO. Þar er m.a. að finna regnskóg, tré sem er holt að innan og litríka páfagauka. Hægt er að fara í göngu á hengibrú, sem er 180 m löng í 25 m hæð efst í trjátoppunum. Í þessari ferð er einnig komið við á O’Reilley’s vínbúgarðinum, vínsmökkun, ef fólk vill. Gist í Brisbane.
Dagur 5
Farið í Ástralía Zoo þar sem hinn þekkti Crocodile Hunter átti heima. Við skoðum kengúrur, kóalabirni, risaskjaldbökur, krókódíla og önnur dýr, sem við höfum ekki fyrir augunum á hverjum degi. Ef tími vinnst til er hægt að fara í skoðunarferð til Montville,  þar hafa íbúarnir atvinnu af ýmiss konar handverki og sölu á fallegum munum s.s. kristal, brúðum, leðurvörum, klukkum o.fl. Þaðan er farið til Brisbane.
Dagur 6
Ekið frá Brisbane til Hervey Bay (um 3 tímar). Þaðan siglt í um 45 mín. út í Fraser Island. Eyjan er stærsti sandskafl í heimi, þétt gróin frá hæstu hæðum niður að strönd og er á heimsminjaskrá Sameinuðu Þjóðanna. Þar er að finna tær vötn, margs konar fallegar plöntur og fjölbreytt dýralíf.
Dagur 7
Fraser Island. Hægt að fara í skoðunarferð um eynna með leiðsögn, sigla á kanó eða ganga um nágrennið, fyrirlestur um dingohundana og ýmislegt fleira sem boðið er upp á á þessari einstöku eyju.
Dagur 8
Fraser  island Við hótelið er góður  aðbúnaður m.a. veitingastaðir, barir og sundlaug í hótelgarðinum. Að auki eru aðrir veitingastaðir, sem fólk getur valið um.
Dagur 9
Ferjan tekin frá Fraser island til Hervey Bay, farið með flugi yfir til Lady Elliott sem er önnur eyja.
Dagur 10
Lady Elliott
: Innifalið  í ferðinni er gisting, morgunmatur og kvöldmatur, köfun  (scuba dive og/eða snorkle), ganga með leiðsögn um eynna, skoðunarferð í bát með glerbotni svo þú getur notið stórkostlegs útsýnis yfir kóralinn og dýralífiið í sjónum.
Dagur 11
Lady Elliott: Ef heppni er með okkur er möguleiki á að skoða risaskjaldbökur, sem koma um þetta leyti  til að verpa í sandinn á ströndinni. Einnig er fuglalífið hér mikið svo fuglaskoðun með staðarleiðsögumanni er eitthvað sem sumir gætu notið eða þá bara að liggja í leti í sólbaði. Ótrúlega stutt ganga út í hinn þekkta kóral.
Dagur 12
Flogið yfir til Hervey Bay og þaðan er okkur ekið til Noosa. Gist næstu þrjár nætur.
Dagur 13
Noosa
. Fallegur lítill strandbær sem býður upp á afslöppun á strönd, kíkja í búðir eða göngu í þjóðgarð sem er nánast við bæjardyrnar. Í garðinum lifa kóalabirnir í sínu eðlilega umhverfi, og algengt er að sjá höfrunga synda úti fyrir ströndinni.
Dagur 14
Noosa frjáls dagur. Mögulegt fyrir þá sem vilja að fara í siglingu upp Noosa river og sjá m.a. hvar fyrstu hvítu landnemarnir byggðu sér heimili. Sigling upp þessa á er mikil upplifun í einstaglega fallegu umhverfi. Hér slúta trén yfir ánni svo báturinn þarf að sigla rólega í gegn.
Dagur 15
Farið að morgni frá Noosa til Brisbane (ca tveggja tíma akstur). Á leiðinni er komið við í Eumundi sem er enn einn smábærinn. Hér er m.a. einn þekkasti götumarkaður í fylkinu, þar munum við stoppa svo fólk geti gengið um og skoðað eða jafnvel verslað eitt og annað af heimamönnum. Gist í Brisbane
Dagur 16:Brisbane:
Ferð um Brisbane með leiðsögn (hop on /off). Ekið  um borgina, ýmsir áhugaverðir staðir skoðaðir. Einnig verður farið með City Cat um fljótið sem rennur um borgina, og ýmsir staðir skoðaðir á þeirri leið.
Dagur 17 og 18: Flug Brisbane-Singapore. Gist í tvær nætur. Hér hefur fólk frjálsan dag og getur m.a. farið í skoðunarferð um borgina svo eitthvað sé nefnt.
Dagur 19: Flug Singapore-London-Keflavík.

Innifalið í verði: Flug og skattar,öll gisting í Ástralíu m/morgunmat, allur akstur og ferjur í Ástralíu, aðgangseyrir í Ástralía Zoo, hop on/off í Brisbane. Á Lady Elliot er allt innifalið sem hefur verið nefnt hér að ofan auk þess sem kvöldmatur er einnig innifalinn þar. Íslensk fararstjórn.

Ekki innifalið í verði: Hádegisverður, kvöldverður eða drykkir, engar veitingar í ferjum. Skoðunarferðir um Fraser Island, sigling á kanó, vínsmökkun. Leiga á köfunarbúnaði, sjóstangaveiði. Sigling um Noosa river. Morgunmatur í Singapore. Annað sem ekki er nefnt að sé innifalið.    (Sjá hér meira um síðustu ferð).

Verð kr. 709.450 á mann í tveggja manna herbergi, aukagjald vegna einbýlis kr. 160.140.

Verð eru með fyrirvara um skatta- og gengisbreytingar og miðast við gengi AU $ þ. 2.1.2010.

Verð ferðar breytist ekki eftir að hún hefur verið að fullu greidd.

Last Updated on Tuesday, 03 August 2010 11:33